Sláturfélag Suðurlands svf hækkar verðskrá á kúa-kálfa og nautaeldisfóðri um 2-5%.
Hækkunin tekur gildi frá og með 12. nóvember 2020.
Verðhækkunin er tilkomin vegna veikingar krónunnar gagnvart erlendum gjaldmiðlum að undanförnu ásamt hækkun á hráefnisverði.
SS hækkaði síðast verð á kúafóðri 16. apríl 2020.
Upplýsingar gefur Elías Hartmann í síma 575-6005