Lýsing
Kalksaltpétur með 0,3% bórinnihaldi hefur alla kosti venjulegskalksaltpéturs. Er einkum ætlaður fyrir matjurtir sem þurfa á miklum
bór að halda en gæti einnig hentað á fóðurkál í ákveðnum tilfellum.
Plöntur af krossblómaætt (td. hvítkál, blómkál, rófur, næpur, repja)
eru viðkvæmar fyrir bórskorti. Gulrætur og kartöflur eru einnig
viðkvæmar fyrir bórskort.
Innihald:
15,5% Köfnunarefni (N)
18,5% Kalk (Ca)
0,30% Bór (B)
Einkenni bórskorts:
Gulrófur - Rófurnar virðast heilbrigðar að utan, en í þeim sjást
glærir eða dökkir blettir, ef þær eru skornar í sundur. Rófurnar eru
þá óætar.
Kál - Stönglarnir verða holir með vatnsósa blettum sem síðan dökkna.
Kartöflur - Mikið verður um smælki og sumar kartöflur verða
brúnflekkóttar að utan. Ef skorturinn er mikill dökkna kartöflurnar
við suðu.
Gulrætur - Springa við mikinn bórskort.
Umsagnir
Engar umsagnir komnar