Sláturfélag Suðurlands svf tilkynnir verðhækkanir á fóðri frá 1.11.2021 og gilda verðin óbreytt í 11 mánuði.
Verðbreytingarnar eru mismunandi eftir tegundum.
Tekið skal fram að fóðurverð hjá SS hefur ekki tekið breytingum síðan 5. október 2020.
SS festir verð og magn á fóðri til 12 mánaða í senn. Þetta tryggir bændum óbreytt verð á því tímabili. Félagið vill með þessu fyrirkomulagi auðvelda bændum að gera kostnaðaráætlanir fyrir rekstur búanna.
Frá því í haust hefur allt fóður hjá SS verið óerfðabreytt. Einnig bjóðum við upp á lífrænt kúa-, unga- og varpfóður.
Elías Hartmann – Deildarstjóri búvörudeildar